|
Talning
Fyrir 1130 dögum
Jólin koma
|
20.04.2009 16:07:22 / Masterofliverpool
Hæ allir ! Ég er búin að vera hjá pabba alla helgina ! Það var mjög gaman......Ég fór til bestu vinkonu minnar og var þar í 11 klukkutíma!!! Frá kl 10 um morgun til kl. 9 um kvöld!!! Fjölskyldan hennar ætlar að flytja..... ekki í burtu, bara í annað hús. Húsið nýja er nálægt húsinu gamla. Þau eru búin að byggja húsið, mála, seta parketið...... en það á eftir að seta húsgögn og laga garðinn Ég fékk að sjá inní nýja húsið og það var *GG* flott !!!Það áttu að vera 7 herbegi en þau stækkuðu hjóna herbegið þannig að það eru 6 herbegi. Ég og besta vinkona mín ( hún Ragnheiður) fórum til hennar möggu....... ( magga er nágranni Ragnheiðar) og við vorum á trampolíninu hennar lengi, lengi. Svo fórum við uppí sumarbústað ömmu og afa hennar Ragnheiðar og horfðum á mynd. Við sentum skilaboð til mömmu hennar Ragnheiðar og spurðum hvort við mættum fá kit-kat og eina kók dós á mann. Mamma hennar svaraði ekki þannig að við fengum okkur bara kit-kat. Þegar við fórum í nýja húsið þar sem mamma og pabbi Ragnheiðar voru, spurðum við mömmu hennar hvort við mættum fá eina kók-dós á mann og hún sagði já... svo sagði hún að við mættum líka fá eitt kit-kat á mann. Okkur fannst það gaman og fórum uppí sumarbústað aftur og horfðum aftur á einhverja mynd og borðuðum AFTUR kit-kat en þetta sinn með kók dós. Næsta dag vaknaði ég eins og eldgömul kerling. Ég var að drepast í skrokknum og ég var mjög þur í hálsinum. Ég labbaði fram á 1 kílómetra hraða á klukkustund. Þegar ég loksins náði að komast inní eldhús þá fékk ég mér að drekka vatn. Svo labbaði ég inní herbegi til pabba á sama hraða og áður. Þegar ég komst til pabba spurði ég hann hvað væri að mér í skrokknum. Hann sagði að þetta væri trampolíninu að kenna. Ég labbaði fram og bölvaði sjálfum mér í hljóði. Í hádegis mat fengum við okkur grænmetis súpu sem Magnea bjó til. Þegar allir voru hálfnaðir með súpuna var ég búin með eina skeið af súpuni, svo útskýrði ég fyrir öllum að ég hafði aldrei verið fljót að klára súpur. Þegar ég var hálfnuð með súpuna gafst ég upp og sagði að ég væri södd. Þá spurði Magnea mig hvort ég vildi ekki fá mér einn ávöxt. Ég sagði já og fékk mér hálfan banana. Þegar ég var búin að draga híðið niður af banananum misti ég bananann í gólfið. Ég sagði þá skýrt að ég væri mjög mikill klaufi. Ég tók bananann og henti honum í ruslið. Magnea spurði mig hvort ég vildi fá eftirrétt og ég sagði já. Ég fékk vannilu ís með súkkulaði kurli og súkkulaði sósu. Ísinn var svo góður að ég spurði hvort ég mætti bara ekki fá aðra skál og pabbi sagði já. Þegar mamma og pabbi voru saman voru þau með vinnumann sem hjálpaði til í gróðurhúsinu. Hann hét Peter og var frá Slóvakíu. Áður en hádegis maturinn byrjaði spurði Magnea mig hvort ég vildi fara út í sjoppu fyrir hana að kaupa 2 mjólk og eina ísdollu að vali. Ég sagði já og hjólaði út í búð. Þegar ég var búin að seta vörurnar í körfuna og var að bíða í röðinni þá rakst ég á Peter. Hann heilsaði mér og labbaði að namminu sem kallast að fá : Bland í poka: Hann benti á nammið og spurði hvort ég vildi nammi. Ég sagði já og benti á eina nammitegund sem voru hlaup bangsar. Hann sagði að ég og Verónika systir mín ættu að eiga nammið. Hann troð fyllti 2 poka af hlaup böngsum og borgaði. Ég þakkaði honum og hjólaði heim. Næsta dag var sunnudagur og þann dag áttu ég og Verónika litla systir mín að fara heim. Þegar við vorum búnar að seta farangurinn í bílinn mundi ég að það átti að vera ferming hjá frænku minni þann dag. Ég leit á klukkuna og sá að fermingin var byrjuð. Þegar við vorum komnar heim voru 20 min. síðan fermingin kláraðist. Nonni sem er pabbi Hrefnu Ósk sem var að fermast, hringdi í mömmu mína og spurði hvort að hún, ég og Verónika vildum koma í svona smá eftir fermingar partý. Mamma sagði já og við fórum þangað. Ég fékk mér 1 sneið af súkkulaði köku og 3 stangir af kjúklingi. Næsta dag var skóli en mér var svo illt í bakinu að ég þurfti ekki að fara. Ég vaknaði svo kl 10 og fór að horfa á sjónvarpið og svo núna sit ég í tölvuni og er að skrifa allt þetta Takk fyrir að lesa og bless !!
»
30.09.2008 15:52:59 / karitas-bestaa
Váááááá´pantaði annann icon ! Er hann ekki flottur ?????
»
27.09.2008 15:32:08 / karitas-bestaa
»
20.09.2008 12:35:22 / karitas-bestaa
»
20.09.2008 12:18:19 / karitas-bestaa
 Vá áðan panntaði ég annan icon og ég beið í nokkrar minotur og þá var hann tilbúinn!!!! Vá stórar þakkir til Icon4u!
»
20.09.2008 10:49:00 / karitas-bestaa
Vá sjaið þetta !!! ég fékk að velja allt sem er í iconinu ef þið viljið fá svona líka farið á http://icon4u.blogcentral.is/ og farið svo í gestabókina og pantið þið megið ráða hvernig iconinn lítur út !!!!!
»
19.09.2008 11:44:29 / karitas-bestaa
»
18.09.2008 12:16:36 / karitas-bestaa
»
01.09.2008 13:42:35 / karitas-bestaa
Halló allir ég ætlaði bara að seigja að það koma bráðum myndir af okkur hérna á spáni og ég get sagt ykkur öllum frá mér hérna á spáni en ég ætla að fara núna Bæbæ og hafið gíðan dag
Kæja
»
21.08.2008 15:16:12 / karitas-bestaa
Loksins ég flutti til spánar fyrir mánuði og ég er GG glöð, ég var að fá internetið í dag og loksins get ég bloggað og sagt frá öllu á spaáni. Við erum ekki búin að kaupa okkur hús en við leigðum hús og nágrananir okkar, dóttir þeirra á íbúðina en þau eru frá englandi og þau eru orðnir bestu vinir okkar núna þau buðu okkur út í búð með þeim svo seinna í dag ætlum við í sund! En þetta var dálítið ervitt first, afi á bíl og hann keyrði okkur út um allt að skoða, verlsa og fara á veitingastaði svo bilaði bíllinn. Við þurftum að bíða í marga daga þanga til bíllinn kæmi úr viðgerð en svo eftir marga daga/vikur kom bíllin. Affi var mjög glaður að vera komin á bílinn aftur. Næsta dag sagði mamma okkur að við ætluðum á showið hans Einars frænda svo um kvöldið vorum við gg spennt að fara og allt en svo leggjum við að stað, eftir smá það klesstum við á annann bíl! Djöfuls óhapp! Bíllinn sem klessti á okkur var í beyjuni við áttum að halda áfram og hann bíða en hann hélt áfram og við líka þannig að við klesstum á! Afi var reiður og leiður, bíllinn var í rúst og allt ómugulegt! Við komumst ekki á showið. Svo kom löggan og sem betur fer þurfti maðurinn að borga ekki við! Afi er ekki ennþá búin að fá bílinn úr viðgerð en hann kemur örugglega fljótt! Jæjja sögu minni lokið  Bless allir og hafið góðan dag! P.s. Pabbi ef þú ert að lesa þetta þá sakna ég þín mjög mikið en ég ætla að vera hjá þér um jólinn
»
22.07.2008 21:51:30 / karitas-bestaa
Hey allir ég er hérna hjá frænky minni í keflavík og ætla að gista þar vegna þess að á morgun flyt ég til SPÁNAR alveg satt skomm. Það verður *GG* gaman..... ég verð eikkað svona 5 klukkutima í flugvélini, ekkert gaman á meðan semsagt  Heyrðu enn verð að fara að gera stuff í tölvunni   Bæmm.
»
16.07.2008 13:54:06 / karitas-bestaa
Halló ég þarf að tylkinna afhverju ég blogga ekki mikið hérna lengur! Sko ég þarf að segja að ég flyt til spánar eftir 7 daga! Þess vegna er ég ekki buin að hafa tíma til þess að blogga því ég er að pakka á fullu sko! Þannig Þeir sem héldu að ég nennti ekki að blogga, SORRY allir Hlakka til að flytja vúhú!
»
05.07.2008 21:55:47 / karitas-bestaa
»
05.07.2008 14:31:46 / karitas-bestaa
Heyrðu er bara að minna ykkur á hann Einsaboy þið verðið að fara á síðuna hans ég meina það og en og aftur STÓRT klapp fyrir Einsaboy !!!!!! Áfram Einsi !!!!!
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
Heimsóknir
Í dag: 260 Alls: 85584
Dagatal
| janúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | | 29 | 30 | 31 | | Fyrri | Næsti |
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 4 júní
Um mig

Hæ ég heiti Karítas L Elvarsdóttir og ég er búin að halda þessari síðu í 3 ár sem er ekkert rosa mikill tími en ég vona að þið njótið síðunar :)
|